Frambjóðendur D-listans í Hveragerði bjóða þér á íbúafund þar sem við viljum kalla eftir hugmyndum og sjónarmiðum íbúa varðandi uppbyggingu og framtíð Hveragerðisbæjar.
Málefnafundurinn fer fram þriðjudaginn 29. mars kl. 20 í Skyrgerðinni.
Við viljum bjóða þér að taka þátt í vinnu þar sem allar hugmyndir um betra samfélag eru vel þegnar.
Unnið verður með hugmyndir í þjóðfundarfyrirkomulagi og munu frambjóðendur taka þátt í umræðum á hverju borði.
Hvetjum alla áhugasama til að mæta og hafa áhrif.
Kaffiveitingar í boði!
Ef þú sérð ekki fram á að geta mætt þá er hægt að senda okkur hugmyndir xdhveragerdi@gmail.com
Comments