Málefnasamningur D-listans og S-listans
2026 - 2030
Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili.
Mikill samhljómur var á meðal framboðanna í aðdraganda kosninga og mátti finna margar sameiginlegar áherslur í stefnumálum þeirra. Þessi samhljómur skapaði sterkan grundvöll fyrir samstarfi. Viðræður D-listans og S-listans hafa verið góðar og einkennst af trausti, málefnum og sameiginlegum vilja til að vinna af ábyrgð fyrir Hveragerði á komandi kjörtímabili.

Ingimar Guðmundsson verður bæjarstjóri
Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.
„Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best,“ segir Ingimar Guðmundsson, verðandi bæjarstjóri Hveragerðis. „Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina.“
Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði
Framboðin hafa gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði. Þar kemur meðal annars fram að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf.
„Viðræðurnar voru mjög góðar, uppbyggilegar og lausnamiðaðar frá fyrsta degi. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var í stóru málunum,“ segir Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans og verðandi formaður bæjarráðs. „Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.”
Í málefnasamningnum eru tilgreind nokkur verkefni sem verða sett sérstaklega í forgang. Þar má meðal annars nefna að aðalskipulag verði endurskoðað með aðkomu íbúa, hugað verði að því að nýr gervigrasvöllur verði nothæfur yfir vetrartímann og að sett verði upp stöðuyfirlit yfir kostnaðarsöm verkefni og stærri framkvæmdir sem bærinn stendur frammi fyrir.
