top of page

Leiðarljós D-listans

Framboðið byggir á skýrri sýn um faglega og ábyrga stjórnun sveitarfélagsins þar sem ákvarðanir eru teknar á grundvelli heildarstefnu, raunhæfra forsendna og skýrrar forgangsröðunar.

Áhersla er lögð á að íbúar hafi aðgang að skýrum og heiðarlegum upplýsingum um stöðu mála og að samráð sé virkur og áhrifaríkur hluti af ákvarðanatöku, þar sem raddir ólíkra hópa fá raunverulegt vægi.

Sveitarfélagið starfar sem ein samræmd heild með skýra ábyrgð, skilvirka verkferla og markvissa nýtingu mannauðs og tækni til að bæta þjónustu og styrkja rekstur.

Jafnframt er lögð áhersla á að byggja upp samfélag sem styður við heilbrigt atvinnulíf, lífsgæði, þátttöku og farsæld íbúa, á sama tíma og uppbygging og fjármál eru rekin af ábyrgð og í jafnvægi við langtímaþróun og sérstöðu bæjarins.

Bæjarbragur og skipulögð uppbygging

Innviðir, samgöngur og þjónusta

Útivist og náttúra

Ábyrg Fjármál

Stjórnsýsla og þróun

Samráð, gagnsæi og þátttaka

Lýðheilsa, menntun og forvarnir

Samfélag og velferð

Litlu stóru málin

Bæjarbragur og skipulögð uppbygging

Við viljum vernda bæjarbrag okkar með því að halda samfélaginu rólegu, kyrrlátu og í sátt við þá einstöku náttúru sem gerir Hveragerði að eftirsóknarverðum stað til að búa á. 

Hveragerði er einstakt samfélag sem við viljum þróa áfram með markvissri og ábyrgri uppbyggingu. Við styðjum vöxt bæjarins, en viljum stýra honum þannig að innviðir, þjónusta og umhverfi haldist í takt við þróunina. Með skýrri forgangsröðun tryggjum við jafnvægi milli uppbyggingar og lífsgæða.

Við ætlum að....

Setja skýra stefnu um hraða uppbyggingar og æskilega þróun Hveragerðis svo að innviðir og þjónusta fylgi uppbyggingu.

Við ætlum að....

Endurskoða aðalskipulag með aðkomu íbúa og skýrri sýn um lágreista byggð.

Endurmeta breytingar á Breiðumörk til að tryggja umferðarflæði og öryggi.

Við ætlum að....

Setja skýra stefnu um hraða uppbyggingar og æskilega þróun Hveragerðis svo að innviðir og þjónusta fylgi uppbyggingu.

Við ætlum að....

Tryggja að næsta stóra uppbyggingarsvæði verði á Sólborgarsvæði, austan Varmár.

Við ætlum að....

Skilgreina og vinna að uppbyggingu miðbæjar.

Við ætlum að....

Bæta samvinnu við atvinnulífið og tryggja nægt framboð atvinnulóða.

Við ætlum að....

Vinna að því að fá fyrirtæki og stofnanir með fjölbreytta starfsemi í sveitarfélagið. Hugað verði sérstaklega að sérkennum bæjarins í tenglum við jarðhita og nýtingu hans.

Við ætlum að....

Skilgreina skýra viðhaldsáætlun á götum, eignum og útisvæðum sveitarfélagsins.

Við ætlum að....

Efla ásýnd og umhverfi með markvissu átaki í fegrun bæjarins, viðhaldi og umhirðu opinna svæða, verndun og þróun útivistarsvæða og grænna svæða.

Við ætlum að....

Bæta umferðaröryggi og styrkja tengingar milli hverfa með áherslu á greiðar gönguleiðir á milli þeirra.

Við ætlum að....

Vinna að því staðfastlega að Hveragerði verði áfram heilsueflandi samfélag.

Lýðheilsa, menntun og forvarnir

Við leggjum áherslu á lýðheilsu fyrir alla með því að efla íþrótta- tómstunda- og frístundastarf, styðja menntun og styrkja félagslega þátttöku. 

Við leggjum áherslu á lýðheilsu og menntun sem grunn að sterku samfélagi. Með markvissri uppbyggingu íþróttaaðstöðu, öflugri skóla- og frístundaþjónustu og fjölbreyttum tækifærum til þátttöku í samfélaginu viljum við skapa umhverfi þar sem íbúar á öllum aldri geta tekið virkan þátt, eflt heilsu sína og styrkt eigin líðan.

Við ætlum að....

Tryggja að uppbygging íþróttamannvirkja haldi áfram af fullum krafti og að verkefni sem þegar eru hafin klárist án frekari tafa.

Við ætlum að....

Setja fram uppbyggingaráætlun fyrir íþróttaaðstöðu í samstarfi við félög.

Við ætlum að....

Klára hönnun og undirbúa byggingu á næsta áfanga Grunnskólans. Framkvæmdin verður boðin út þegar þörf krefur.

Við ætlum að....

Fara af stað með hönnun og undirbúning á leikskóla í Kambalandi og vinna að uppbyggingu hans í áföngum í takt við þjónustuþörf.

Við ætlum að....

Tryggja að þjónusta frístundamiðstöðvar þróist með vexti sveitarfélagsins og þörfum barna, ungmenna og eldri borgara.

Við ætlum að....

Þróa skipulag í kringum núverandi akstursþjónustu til að tryggja aðgengi að skóla-, frístunda og tómstundastarfi barna og eldri borgara.

Við ætlum að....

Lofa samstarfi og samtali við íþrótta- og tómstundastarf í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á að tryggja virka aðkomu að ákvörðunum og uppbyggingu.

Við ætlum að....

Auka framboð á frístunda-, tómstunda- og forvarnastarfi fyrir 16–18 ára.

Við ætlum að....

Meta reglulega stöðu í málefnum barna og ungmenna og nýta niðurstöður markvisst til umbóta.

Við ætlum að....

Vera leiðandi sveitarfélag í að vinna eftir lögum um farsæld barna meðal annars með því að efla sérkennslu, snemmtæka íhlutun og þróa frístundaúrræði.

Við ætlum að....

Taka skref í að efla þjónustu við fötluð börn í Hveragerði með það að markmiði að þau geti í auknum mæli sótt þjónustu í sínu nærumhverfi.

Við ætlum að....

Taka púlsinn á bæjarbúum með reglulegum íbúakönnunum meðal annars um skipulag, fjármál og aðgengi að upplýsingum.

Ábyrg Fjármál

Við stöndum fyrir ábyrgum fjármálum sem tryggja öfluga þjónustu án þess að fórna bæjarbrag eða þrýsta á ósjálfbæra uppbyggingu.


Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins hafa um það bil tvöfaldast á kjörtímabilinu. Sú þróun er áhyggjuefni og kallar á skýr viðbrögð og aðgerðir sem stuðla að lækkun skuldahlutfalls sveitarfélagsins. Við viljum taka markviss skref í átt að skynsamlegri fjármálastjórn, með áherslu á betri forgangsröðun í framkvæmdum og uppbyggingu þannig að valdar séu hagkvæmar og raunhæfar lausnir án þess að skerða grunnþjónustu.

Við ætlum að....

Tryggja að fjárfestingar og lántökur taki mið af greiðslugetu sveitarfélagsins.

Við ætlum að....

Sjá til þess að farið verði í framkvæmdir að undangengnu faglegu undirbúningsferli.

Við ætlum að....

Einfalda stjórnsýslu og skýra ábyrgð, draga úr ráðgjafarkostnaði og styrkja innri getu sveitarfélagsins.

Við ætlum að....

Stefna að því að sveitarfélagið eigi frekar en leigi lykilhúsnæði.

Við ætlum að....

Vinna að því að fasteignagjöld hækki ekki umfram eðlilegar verðlagshækkanir.

Við ætlum að....

Leita leiða til þess að skapa svigrúm til lækkunar fasteignagjalda.

Við ætlum að....

Stefna að því að lóðaverð endurspegli aðstæður á markaði, varðandi eftirspurn og framboð hverju sinni.

Við ætlum að....

Bæta upplýsingagjöf til íbúa með skýrum og aðgengilegum upplýsingum um hvernig fjármunum er varið.

Innviðir samgöngur og þjónusta

Við ætlum að....

Tryggja öryggi og heilnæmi neysluvatns í Hveragerði með því að uppfylla gæðakröfur reglugerðar.

Við ætlum að....

Koma fráveitumálum bæjarins í viðeigandi horf svo sveitarfélagið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þess.

Við ætlum að....

Koma uppbyggingu nýs gámasvæðis í formlegt ferli og vinna markvisst að því að færa starfsemina úr íbúðabyggð á næstu árum.

Við ætlum að....

Bæta aðgengi, öryggi og merkingar á göngu- hjóla- og reiðstígum. Standa að uppbyggingu stígs ofan á Hamrinum og almennu viðhaldi stíga á Hamarssvæðinu.

Stjórnsýsla og þróun

Við ætlum að....

Forgangsraða fjármunum í verkefni sem skila mestum samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi.

Við ætlum að....

Samþætta stefnur sveitarfélagsins þannig að hægt sé að nýta þær markvisst við ákvarðanir og forgangsröðun.

Við ætlum að....

Tryggja að sveitarfélagið starfi sem ein heild með samræmdum vinnubrögðum og skilvirku samstarfi, studda af góðum innviðum og skýru upplýsingaflæði.

Við ætlum að....

Styrkja nefndir með skýrari hlutverkum, markmiðum og verkferlum.

Við ætlum að....

Mæla reglulega starfsánægju og tryggja að niðurstöður séu nýttar markvisst til að bæta vinnuumhverfi, efla faglega þróun og viðhalda stöðugleika í mannauði.

Við ætlum að....

Nýta gervigreind og aðrar tæknilausnir markvisst til að bæta þjónustu og auka skilvirkni.

Við ætlum að....

Eiga frumkvæði að auknu samtali og samstarfi við Ölfus og skoða á kjörtímabilinu möguleika á sameiningu, með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.

Samfélag og velferð

Við ætlum að....

Styðja við félagasamtök og aðra menningarstofnanir í bænum.

Við ætlum að....

Tryggja að félagslegur stuðningur og sér- og stuðningsþjónusta, bæði fyrir börn og fullorðna, miði að því að efla sjálfstæði og styrkja einstaklinga til sjálfshjálpar.

Við ætlum að....

Halda áfram með og styðja við metnaðarfulla uppbyggingu þjónustukjarna fyrir eldri borgara.

Við ætlum að....

Styðja hugmyndir félags eldri borgara á endurnýjun húsakosts fyrir starfsemina.

Við ætlum að....

Skoða möguleika á mismunandi rekstrarformum við starfsemi nýrra leikskóla.

Við ætlum að....

Tryggja að breytingar á leikskólagjöldum dragi ekki úr gæðum, stöðugleika og faglegu starfi í leikskólum og að fjármagn haldist í takt við þarfir þeirra.

Við ætlum að....

Þróa og innleiða raunskráningarkerfi leikskóladvalar með hagsmuni barna að leiðarljósi.

Útivist og náttúra

Við ætlum að....

Móta heildstæða sýn fyrir svæðið undir Hamrinum og þróa það áfram sem aðlaðandi og vel nýtt útivistarsvæði.

Við ætlum að....

Vinna að samræmdri uppbyggingu upp í dal í samstarfi við íþrótta- og útivistarfélög, þar á meðal Hestamannafélagið Ljúf og Golfklúbb Hveragerðis. Skoða markvisst tækifæri til uppbyggingar, svo sem reiðhallar og frekari stækkunar golfvallarins.

Við ætlum að....

Fjölga, þróa og viðhalda leiksvæðum sveitarfélagsins. Áhersla verður á lóð Bungubrekku og nýjan leikvöll í Kambalandi.

Samráð, gagnsæi og þátttaka

Við ætlum að....

Efla samráð og stjórnmálamenningu með reglulegum íbúafundum, aðgengilegum bæjarfulltrúum og markvissri upplýsingagjöf.

Við ætlum að....

Sjá til þess að ungmenna-, notenda- og öldungaráð verði nýtt markvisst til að tengja þessa hópa inn í stjórnsýsluna og tryggja að raddir þeirra heyrist skýrt.

Við ætlum að....

Taka púlsinn á bæjarbúum með reglulegum íbúakönnunum meðal annars um skipulag, fjármál og aðgengi að upplýsingum. Birta niðurstöður opinberlega og nýta þær markvisst til að bæta lykilþætti í starfsemi sveitarfélagsins.

Við ætlum að....

Bæta heimasíðu sveitarfélagsins og gera upplýsingar aðgengilegri. Tryggja að auðvelt sé að nálgast fundargerðir, áætlanir, kostnað og stöðu verkefna.

Litlu stóru málin

Við ætlum að....

Bæta öryggi gangandi vegfarenda með fleiri og betri gangbrautum, sérstaklega við skóla og fjölfarnar götur.

Við ætlum að....

Setja reglulegt viðhald gangbrauta í forgang, þar á meðal málun á hverju vori.

Við ætlum að....

Fjölga ruslatunnum og bæta almennt umhverfi bæjarins.

Við ætlum að....

Tryggja örugga og góða aðstöðu fyrir börn, þar á meðal að ærslabelgurinn sé í lagi.

Við ætlum að....

Efla samskipti við íbúa með einföldu ábendingakerfi án rafrænna skilríkja.

Við ætlum að....

Bjóða upp á opna fundi og aðgengilegan viðtalstíma með bæjarstjóra.

Við ætlum að....

Tryggja skýrari og uppfærðari upplýsingagjöf um skipulagsmál í almenningsrýmum.

Við ætlum að....

Bæta fundaraðstöðu á bæjarskrifstofu og nýta fjármagn betur.

Við ætlum að....

Koma upp útigrillaðstöðu í Lystigarðinum.

Við ætlum að....

Efla ímynd Hveragerðis sem blómabæ með fleiri blómstrandi svæðum.

  • Facebook
  • Instagram

©2026 - Sjálfstæðisfélag Hveragerðis

bottom of page